Sunday, August 10, 2014

Í gær

Ég fór í brúðkaup í gær og klæddist nýja fína samfestningnum mínum úr Mango sem ég er svo ótrulega ánægð með - mig hefur lengi langað í flottan samfesting en aldrei fundið þann rétta. Þar sem sólin og góða veðrið lét sjá sig í gær fannst mér þetta einmitt rétti dagurinn í að klæðast hvítum samfesting. 


Glæsilega Sunnan mín og ég.

IS

Tuesday, August 5, 2014

ÞJÓÐHÁTÍÐ


Ég kíkti til Eyja í stutt stopp á sunnudaginn - það var mega gaman þrátt fyrir ekkert alltof spennandi veður. Það var dansað,sungið og dottið niður molduga brekkuna og mánudagurinn fór í að sofa og jafna sig eftir alla þessa snilld. Ég ætlaði að vera dugleg að taka myndir en þar sem síminn minn er bilaður og dó fljótt þá tók ég eiginlega engar myndir en hér eru þær fáu sem voru teknar.







Húfa - 66north
Prjónapeysa - Topshop
Gallaskyrta - vintage
Vesti - dúnvesti frá Cintamani
Hunter stígvel

Takk fyrir mig og sjáumst aftur að ári.

IS

Monday, July 28, 2014

Monday

Ég væri ekkert á móti því að klæðast þessu dressi í dag.
Leðurjakki - Acne Studios
Skór - Alexander Wang
Skyrta - ZARA
Buxur - Mango
Úr - Marc Jacobs

IS

Sunday, June 22, 2014

Tumblr-húkt

Ég fékk mér tumblr fyrir nokkrum árum og elska það, ég get legið þar inni í nokkrar klst án þess að fatta það. Ég vildi líka að ég gæti farið á tumblr og eignast fötin og hlutina sem eru þar - en ég er ekki svo heppin.

















Tumblr mitt er ingibjorgsigfus.tumblr.com 

Njótið sunnudagsins x

IS

Monday, May 26, 2014

Helgin.

Á laugardaginn útskrifuðust tvær bestu vinkonur mínar úr Versló svo þetta var sannarlega góð helgi með góðum vinum. Reyndar akkurat þessa sömu helgi er eitt ár frá því ég útskrifaðist - tíminn er alltof fljótur að líða því mér finnst eins og það hafi verið í gær.
Laugardagurinn var dásamlegur og er ég mikið stolt af vinkonum mínum sem eru svo duglegar, það vantaði þó eina vinkonu í viðbót sem fagnaði bara í Ástralíu í staðinn - við söknuðum þín Rakel.





Gott að eiga góða að <3

Outfit:
Kjóll - Forever21
Skór - MANGO
Eyrnalokkar - Topshop

IS

Monday, May 19, 2014

TATTOO

Eins og ég hef nefnt áður hér þá fékk ég mér tattoo í Miami. Ég er nú þegar með fæðingardaginn minn á úlnliðnum á mér sem ég fékk mér þegar ég var 16 ára. Ég er búin að vilja fá annað í langan tíma núna og ég ákvað svo 100% hvað ég vildi fá í byrjun árs en var ekki nógu viss með skrift og hvort ég vildi hafa þetta á ensku eða eitthverju öðru tungumáli. Ég loksins gat ákveðið mig og er þetta útkoman

My family: Því hvað er dýrmætara? Fyrir mér er fjölskylda líka vinir mínir og þeir sem standa mér næst. Án allra þeirra væri lífið ekki eins skemmtilegt og er ég heppin að hafa svona marga í kringum mig sem mér þykir vænt um. 

IS

Tuesday, May 13, 2014

Síðustu dagarnir

ÉG ER KOMIN HEIM - eins ljúft og lífið var í Miami þá er alltaf gott að koma heim. Hitta fólkið sitt, borða almennilegan mat og rúmið sitt. Ég væri þó alveg til í að sólin myndi láta sjá sig hérna á Íslandinu.
Ég bloggaði mun minna en ég ætlaði að gera úti en tíminn var svo fljótur að líða og ég gaf mér bara ekki tíma í að setjast niður. Ég ætla að segja í stuttu máli frá síðustu dögunum okkar þó þeir hafi mest farið í að njóta.
Við vorum mjög heppnar með veðrið síðustu dagana okkar svo við vorum duglegar í að nota sólina og grilla okkur smá. Karitas, Adda, Inda og Ásdís komu svo til Miami og var ekkert smá gaman að hitta vinkonur sínar sem eru búnar að vera ferðast um heiminn í nokkra mánuði.

KEY WEST: Síðustu helgina í Miami fórum við(Ég, Anna og Þóra) til Key West með nokkrum öðrum stelpum úr EF - við vorum búnar að ákveða að fara þangað á þessum 5 vikum og vorum búnar að skoða margar myndir af þessari paradís. En þegar við komum þarna þá föttuðum við að við vorum búnar að gera okkur aðeins of miklar vonir, þetta var mun meiri sveit en við hefðum ímyndað okkur. Við ákváðum samt að fara á ströndina og héldum að við gætum labbað þangað en ákváðum eftir klst labb(búnar að mæta nokkrum hænum og hönum) að taka taxa því við vorum búnar að labba í hringi og vorum alveg viltar - en við komumst loksins á ströndina sem var fín en mér fannst ströndin okkar á Miami Beach flottari. Þrátt fyrir smá vonbrigði var mjög gaman að koma þarna og áttum við góðan dag.

Síðasta vikan okkar fór svo í að njóta og slaka á í ljúfa lífinu ásamt því að klára skólann auðvitað. Skólinn var mjög fínn og mjög skemmtileg upplifun að prufa eitthvað alveg nýtt. Föstudagskvöldið var síðasta kvöldið og við fórum í síðasta skiptið(í bili) á Lincoln Road og enduðum á því að fá okkur tattoo - það var samt löngu ákveðið svo við pössuðum okkur á því að vanda valið. Við hittum svo stelpurnar og kvöddum þær því þær eiga eftir nokkra daga í USA.
Þetta eru bókað 5 vikur sem ég mun aldrei gleyma.




Club Fifty - útsýni yfir Miami City frá 50.hæð

Við vinkonur á Club Fifty


Sameinaðar loksins!

Fórum á Mansion og hittum Miami Heat leikmenn

KEY WEST



Fórum aftur í hjólatúr og hjóluðum um Miami Beach







Eftir nokkra klst bið á JFK komumst við loksins heim

Haldið endilega áfram að fylgjast með mér.

Ingibjörg

Monday, April 21, 2014

ORLANDO

Við stelpurnar eyddum helginni í Orlando - fórum snemma á laugardegi og komum í gærkvöldi. Við fórum í ferð með skólanum svo það voru nokkrir fleiri krakkar frá EF. Við lögðum af stað eldsnemma á laugardagsmorgninum og keyrðum til Orlando með rútu og vorum komin um 10 leytið. Við eyddum öllum laugardeginum í Disneylandi sem var mjög gaman, þar sem ég var þriggja mánaða þegar ég var þarna síðast var mjög gaman að koma þarna aftur og muna þá eftir því. Við fórum í Magic kingdom og skoðuðum okkur um og fórum í nokkur tæki í þessu prinsessulandi. Rútan kom að sækja okkur aftur um kvöldið og við vorum komnar uppá hótel um 11 leytið -  það var mjög fínt að fá að sofa í alvöru góðu rúmi eftir að hafa sofið í koju síðustu tvær vikurnar. Á sunnudeginum vöknuðum við kl hálf 8 og fórum þá Universal Studido og við byrjuðum í Island of Adventure. Ég og rússibanar höfum aldrei verið miklir vinir eins gaman og mér finnst í þeim en ég byrjaði samt daginn á því að fara í tvo rússibana sem endaði ekkert svakalega vel þar sem allur dagurinn fór í flökurleika og æl. Ekkert mjög skemmtilegt en ég reyndi nú samt að njóta mín og skoða bæði Island of Adventure og Universal og fór í nokkur tæki sem voru í lagi fyrir magann minn. Dagurinn var góður þrátt fyrir þetta litla vesen en það hefði þó mátt vera aðeins betra veður þar sem okkur var eiginlega bara kalt því sólin lét ekkert sjá sig.
Rútan kom að sækja okkur kl 6 og lögðum við þá af stað aftur til Miami eftir æðislega helgi.
-


 




Ingibjörg